Skip to content

VÖRUKARFAN MÍN

0 Atriði
×

ZO ∙ ON / HOME /

VÖRUKARFAN ÞÍN

Vörukarfan þín er tóm.

SAMTALS

0 ISK

Afsláttarkóðar og flutningskostnaður reiknast síðar í ferlinu.

Hreinsa Körfu
Zo ∙ On / Sendingar

Sendingar

SENDINGAR ERLENDIS: TOLLAR, VSK OG AFGREIÐSLUGJÖLD

Pantanir eru sendar frá Íslandi. Við afhendingu í öðrum löndum geta bæst við innflutnings-VSK, tollar og afgreiðslugjöld pósts eða flutningsaðila. Frí sending nær aðeins til flutningskostnaðar, ekki þessara innflutningsgjalda.

Nema sérstaklega sé tekið fram í greiðsluferlinu að innflutningsgjöld séu innifalin, eru þau ekki innifalin í vöruverði eða sendingarkostnaði og viðtakandi greiðir þau almennt við innflutning. Upphæðin fer eftir vöru og reglum viðtökulands; leitaðu upplýsinga hjá tollayfirvöldum eða flutningsaðila áður en þú pantar. Þetta breytir ekki lögbundnum neytendaréttindum.


SENDINGARKOSTNAÐUR

Við sendum frítt til þín innanlands ef þú pantar fyrir kr. 15.000 eða meira. Fyrir pantanir undir kr. 15.000 er sendingakostnaðurinn kr. 950.

AFHENDINGARTÍMI

Það getur tekið allt að þrjá daga fyrir pöntunina að komast til þín. Ef þú býrð á höfuðborgarsvæðinu og pantar fyrir kl. 12 er pöntunin hins vegar keyrð út samdægurs ef þú velur að fá afhent með TVG Express. Pantanir sem gerðar eru á helgi- og frídögum eru teknar saman og póstlagðar daginn eftir.

HVERNIG FÆ ÉG AFHENT?

Allar innlendar pantanir eru afhentar með Póstinum eða TVG Express, allt eftir því hvora þjónustuna þú velur. Ef þú velur að fá afhent með Póstinum er pöntunin send á næsta Pósthús. Ef þú býrð á höfuðborgarsvæðinu getur þú valið um að fá vöruna keyrða heim til þín með TVG Express eða senda á einhvern af þeim fjölmörgu afhendingarstöðum sem þeir bjóða upp á. Athugið að TVG Express býður einnig upp á fjölmarga afhendingarstaði í dreifbýli.

Ef þú býrð utan Íslands verður pöntunin þín send með Póstinum. Sendingarkostnaður og möguleg tilboð um fríar sendingar koma fram í greiðsluferlinu áður en þú staðfestir kaupin.

HVERNIG GET ÉG FYLGST MEÐ PÖNTUNINNI MINNI?

Um leið og við höfum tekið saman pöntunina þína sendum við þér sendingarnúmerið með tölvupósti. Þú getur fylgst með sendingunni þinni með því að fylgja hlekknum í tölvupóstinum. Ef þú færð ekki tölvupóstinn frá okkur innan 24 klukkustunda frá því þú kláraðir pöntunina hafðu þá samband við þjónustuverið.

Vinsamlegast athugið að pantanir eru afgreiddar á virkum dögum. Vöruhúsið okkar er lokað á helgidögum og um helgar.