Skipta og skila
VÖRUSKIPTI
Viltu skipta um stærð eða lit á vörunni þinni? Fylltu út skipta/skila eyðublaðið sem fylgdi sendingunni og sendu hana til okkar í Urðarhvarf 4 í Kópavogi eða komdu með hana til okkar í Urðarhvarf 4 í Kópavogi. Þú hefur 30 daga eftir að þú færð vöruna til að skipta um stærð.
SKILARÉTTUR
Við skiljum að heimurinn er ekki fullkominn og stundum er pöntunin þín ekki það sem þú bjóst við. Eða skiptir þú kannski bara um skoðun? Hvort heldur sem er, þá bjóðum við upp á ókeypis skil. Þú getur skilað vörunni eða látið okkur vita að þú viljir skila henni innan 30 daga eftir að þú færð sendinguna. Fylgdu einfaldlega leiðbeiningunum hér að neðan og við sjáum um restina.
Pakkaðu inn öllum vörunum sem þú vilt skila – helst í pakkningarnar sem þær komu í.
Fylltu út skila/skipta eyðublaðið og pakkaðu því inn með vörunum. Þetta gerir okkur kleift að endurgreiða þér fyrr.
Ef þú býrð á höfuðborgarsvæðinu biðjum við þig um að koma með vöruna í verslun okkar í Urðarhvarfi 4 203 Kópavogi. Ef þú býrð utan höfuðborgarsvæðisins að þá límir þú endursendingarmiðann sem fylgdi með sendingunni utan á pakkann þinn. Á miðanum stendur endursendingarheimilisfangið.
Um leið og við höfum móttekið vöruna, hefjum við endurgreiðsluferlið. Ef þú hefur spurningar varðandi skilin, þá getur þú haft samband við þjónustuverið okkar í síma 557-1050 eða með tölvupósti á info@zo-on.com.
Endursending berist til:
ZO•ON Iceland
Urðarhvarf 4
203 Kópavogur
ENDURGREIÐSLA
Markmið okkar er að endurgreiða þér eins fljótt og auðið er. Við endurgreiðum venjulega innan 3 daga frá því að við fáum pakkann þinn í hendurnar. Við sendum við þér tölvupóst til að láta þig vita að endurgreiðslan sé á leiðinni. Eftir að þú hefur fengið tölvupóstinn, gefðu greiðslunni vinsamlegast 5-10 virka daga til að birtast á reikningnum þínum. Þessi tími fer eftir bankanum eða kortaútgefandanum þínum. Venjulega færðu endurgreitt á sama hátt og þú greiddir upprunalega fyrir vöruna. Ef það er ekki mögulegt, munum við strax hafa samband við þig til að finna aðra endurgreiðsluleið.